03.06.2026 06:29Árni Friðriksson HF 200 á EyjafirðiÁrni Friðriksson HF 200 hélt frá Akureyri i Fyradag eftir góða skveringu hjá Slippnum á Akureyri Þar sem að meðal annas var skipið Heilmálað ásamt öðrum tilfallandi slippverkum og er skipið hið Glæsilegasta og ber slippnum vott um góð vinnubrögð i hvivetna myndir Þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir 02.06.2026 23:34Baldur og Herjólfur sameina krafta sína
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands. Fyrirkomulagið verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní. Þjónusta við samfélagið tryggðFerjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum síðdegis í dag. Vegna erfiðra aðstæðna og óhagstæðs veðurfars hefur lítið mátt út af bregða að siglingaáætlun Herjólfs raskist. Þegar Herjólfur siglir aðeins á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m og/eða ef vindur er yfir 12 m/s en það er ekki óalgengt á þessum árstíma. Skrifað af Þorgeir 02.06.2026 23:09Hriseyjarferjan Sævar
Skrifað af Þorgeir 31.05.2026 08:24Mein Schiff 2 i fyrsta sinn á Akureyrii Morgun kom i fyrsta skipti til Akureyrar Þýska Skemmtiferðaskipið Mein Schiff 2 um borð voru 2894 farþegar og 1092 i áhöfn Skipið er 315,75 metrar á lengd og 42,3 á Breidd skipið er gert út undir fána Möltu og mun skipið stoppa til kl 19 i kvöld
Skrifað af Þorgeir 30.05.2026 09:01Vestmannaeyjarhöfn fær nýjan LéttirLéttir tekinn í notkun í EyjumStefna að og telja sig þurfa einnig aflmeiri lóðsbát vegna sífellt stærri skipa sem koma til Vestmannaeyjahafnar
Ekki gafst tími til að klára að mála Létti fyrir fyrstu verkefni hans. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Vestmannaeyjahöfn keypti í byrjun árs notaðan dráttarbát frá Kanada. Voru þetta fyrstu bátakaup hafnarinnar frá því Lóðsinn var afhentur 1998.
Til stóð að mála bátinn og er reyndar búið að grunna hann allan. Ekki vannst tími til þess klára málningarvinnuna vegna þess að Léttir var strax kominn í verkefni að aðstoða við dælingu á laxaseiðum úr Viðlagahöfn í flutningaskip. Nýr Léttir er smíðaður 2017 og er í Bureau Veritas klassa. Hann er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen, 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, með 9 tonna dráttargetu og tvær skrúfur sem auka stjórnhæfni við erfiðar aðstæður. Í honum eru tvær Volvo Penta vélar, sem saman skila 700 hestöflum. Báturinn er keyptur á rétt rúmar 110 milljónir króna.
Njáll Kolbeinsson hjá Vestmannaeyjahöfn segir að höfnin þurfi einn minni bát samhliða Lóðsinum. Léttir er þægilegur í notkun innan hafnar. „Við erum að fá skip núna sem sækja lifandi lax út í Viðlagafjöru. Við notuðum nýja bátinn fyrir helgi til að tengja rör úr seiðatönkunum yfir í skipið. Lóðsinn kæmist ekki þarna alveg upp í fjöru, hann er það stór og djúpristur. Nýi báturinn er fín viðbót. Það voru lengst af til tveir bátar hérna við höfnina. Hér var annar Léttir en hann fór úr rekstri fyrir um það bil tíu árum fyrir aldursakir,“ segir Njáll.
Í Vestmannaeyjahöfn er skylduhafnsaga sem þýðir að hafnsögumaður fer í öll skip sem þangað koma og þegar þau fara. Fram til þessa hefur verið farið með hafnsögumanninn í Lóðsinum en nú sjá menn fram á að fara mun frekar á Létti til að sinna þessum erindum sem mun skila sér í olíusparnaði og minni fyrirhöfn. Stöðugt stærri skipÞegar gámaskip, skemmtiferðaskip og önnur stærri skip koma til Eyja hefur Lóðsinn nýst til þess að snúa þeim inni í höfninni. Staðreyndin er hins vegar sú að skipin sem koma til Eyja verða stöðugt stærri og aðkallandi sé að fá stærri dráttarbát í stað Lóðsins. „Við viljum kaupa nýjan bát helst frá Damen. Ef það verður byggð hér stórskipahöfn úti á Eiði, sem fer vonandi að gerast, þá munu koma hingað enn stærri skip. Þá verðum við að hafa öflugri bát en Lóðsinn,“ segir Njáll.
Lóðsinn var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1998. Hann er því 28 ára gamall á árinu. Hann er með rúmlega 2.000 hestafla Mitsubishi vél. Toggeta hans er 28 tonn en til samanburðar er Magni sem Faxaflóahafnir eiga, með 6.900 hestafla Caterpillar vél og 85 tonna dráttargetu áfram og 84 tonna aftur á bak. Njáll segir að draumurinn sé að Vestmannaeyjahöfn fái í stað Lóðsins dráttarbát að svipaðri stærð en mun öflugri og með 50-60 tonna dráttargetu. Ljóst er að nýr bátur af þessu tagi kostar mörg hundruð milljónir króna og þyrftu að koma til samningar milli ríkisins og Vestmannaeyjabæjar um kaup á slíku tæki. Skrifað af Þorgeir 29.05.2026 15:25Átta sóttu um stöðu Forstjóra Hafró
Skrifað af Þorgeir 29.05.2026 06:25Hótel Lodge á Grenivik
Skrifað af Þorgeir 27.05.2026 23:16Vilhelm Þorsteinsson EA11
Skrifað af Þorgeir 26.05.2026 21:25Góð verkefnastaða frammundan
Skrifað af Þorgeir 26.05.2026 21:20Varskipið Þór á milli turna
Skrifað af Þorgeir 20.05.2026 23:33Eigendur Snekkjunnar stefna Rikinu Og Gæslunni
Eigendur lúxussnekkjunnar La Datcha, sem siglir undir fána Panama, hafa stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur en snekkjunni var í mars meinað að leggjast að bryggju á Akureyri vegna tengsla hennar við Rússa. Landhelgisgæslan vísaði skipinu þá úr íslenskri landhelgi. Aðalkrafa eigendanna er að ákvörðunin um að meina skipinu að leggjast að bryggju á Akureyri verði felld úr gildi en varakrafan að ólögmætt hafi verið að vísa skipinu úr íslenskri landhelgi. Gunnar Sturluson, lögmaður eigenda snekkjunnar, segir það undir í málinu hvort þvingunaraðgerðir íslenskra stjórnvalda nái til snekkjunnar. Frétt af mbl.isÁ leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nóttReynir á afturvikra lagasetningu„Útgerðin þarf að fá úr því skorið hvort þetta standist. Þarna reynir á afturvirka lagasetningu en Evrópusambandið setti reglugerð í apríl sem miða við atburði sem gerðust í febrúar, þannig að þeir létu reglurnar gilda afturvirkt. Þetta var ekki innleitt á Íslandi fyrr en enn síðar. Síðan eru svona tæknileg atriði sem eru undir í málinu,“ segir hann. Gunnar segir t.a.m. reglugerðina sem um ræðir mæla fyrir um hafnarbann fyrir skip sem falla undir hana en Landhelgisgæslan hafi gengið lengra og vísað skipinu úr íslenskri landhelgi. „Þetta snýst m.a. um að Landhelgisgæslan tók ákvörðun um að vísa skipinu úr íslenskri lögsögu á grundvelli reglna um þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi og við teljum að ákvörðunin sem gæslan tók sé ólögmæt. Við erum m.a. að krefjast þess að hún verði felld úr gildi.“ Frétt af mbl.isÁttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn íÓtilgreint tjón blasir viðEru fjárhagslegir hagsmunir undir? „Það kemur í ljós. Ég get ekki tjáð mig um það.“ Það hlýtur samt að hafa orðið eitthvert tjón, er það ekki? „Það blasir við.“ Þú getur ekkert slegið á umfang þess? „Nei.“ Gunnar segir málið hafa hlotið flýtimeðferð fyrir héraðsdómi og að næsta fyrirtaka verði 1. júní. Áttu von á umfangsmikilli aðalmeðferð þegar að því kemur eða er þetta ekki tiltölulega einfalt? „Það eru náttúrulega nokkuð flókin lögfræðileg atriði sem eru til skoðunar.“ Heimild Morgunblaðið myndir Þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 18.05.2026 18:18Fyrsta stóra skemmtiferðaskipið til AkureyrarI morgun kom Norwegian Star til Hafnar á Akureyri og um borð voru 3300 farþegar og 1000 manna áhöfn þetta er fyrsta stóra skemmtiferðaskipið sem að kemur hingað 2026 og greinilegt að þetta hefur viðtæk áhrif á ferðaþjónustuna og bæinn sem að yðaði af lifi þegar ég skrapp i miðbæinn i dag
Skrifað af Þorgeir 14.05.2026 15:41LataLante á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 13.05.2026 06:31Þórunn Sveinsdóttir Ve 401
Skrifað af Þorgeir 10.05.2026 23:40Skenmmtiferðaskipin i sumar
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 804 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 1667 Gestir í gær: 4 Samtals flettingar: 3007973 Samtals gestir: 73426 Tölur uppfærðar: 4.6.2026 04:26:34 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is